Chris Rigg 17 ára miðjumaður Sunderland er ofarlega á óskalista Manchester United og er búist við tilboði frá United í janúar.
Staðarblaðið í Sunderland segir frá þessu en félagið vill helst ekki selja hann í janúar.
Rigg er mikið efni og eitt mesta efni Englands í dag, hann er í stóru hlutverki í aðalliði Sunderland.
United horfir til þess að fá Rigg sem er sóknarsinnaður miðjumaður og telur félagið að hann sé klár í slaginn.
United er mikið að horfa til þess að fá inn unga leikmenn og byggja upp lið sem er klárt í að berjast á toppnum á næstu árum.
🚨 BREAKING:
Sunderland are aware of Manchester United’s growing interest in Chris Rigg, but will resist all approaches for the teenager during the January transfer window. A January approach from United is regarded as likely. #MUFC [@Scottwilsonecho] pic.twitter.com/exeuw0tlzT
— mufcmpb (@mufcMPB) November 21, 2024