Manchester City hefur staðfest að Pep Guardiola hafi skrifað undir nýjan samning við félagið til ársins 2027.
Guardiola var að verða samningslaus eftir tímabilið en nú er ljóst að hann heldur áfram.
Engin klásúla er til að rifta samningum sumarið 2026 eins og rætt hafði verið.
„Manchester City er mér svo mikilvægt,“ sagði Guardiola.
„Ég er á mínu níunda tímabili hér og við höfum átt svo magnaða tíma saman. Ég er með sérstaka tengingu við þetta félag.“
„Þess vegna er ég glaður með það að framlengja dvöl mína um tvö ár til viðbótar.“