Metro segir að málið hafi verið mikið rætt á samfélagsmiðlum og hafi sumir haldið því fram að bíllinn hafi ekki verið hreyfður svo mikið sem einn metra síðan 2020.
Hann hefur staðið við St Pancras hótelið síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar braust út og að vonum hafa margir tekið eftir honum því bæði er liturinn ansi áberandi og eins er þessi bílategund ekki mjög algeng.
Ýmsar kenningar hafa verið settar fram um bílinn og staðsetningu hans við hótelið. Einn TikTok notandi birti meðal annars færslu um bílinn og varpaði fram spurningunni um hvenær bíllinn myndi hreyfast úr stað.
Myndbandið hefur fengið 1,3 milljónir áhorf og margir hafa tjáð sig um málið. Einn sagði til dæmis: „Guð minn góður! Hann hefur ekki verið hreyfður og ég hef gengið þarna framhjá margoft á síðustu árum.“
Annar sagði: „Bíddu . . . . ég gekk þarna framhjá fyrir sjö mánuðum . . . ER HANN ENN ÞARNA?“
Annar TikTok notandi, sem segist starfa á hótelinu, varpaði ljósi á málið og sagði að bíllinn sé í eigu eins gests hótelsins sem hafi flutt varanlega inn á það í upphafi heimsfaraldursins því hann átti í erfiðleikum með að komast aftur til heimalandsins.
Annar notandi tók undir þetta og sagði að eigandinn búi á hótelinu og að bíllinn hafi staðið þarna síðan 2018 ef ekki lengur.
Blaðamaður Metro hringdi í hótelið og staðfesti starfsmaður að gestur, sem leigir íbúð, eigi bílinn. Hann staðfesti einnig að maðurinn hafi búið á hótelinu í nokkur ár.