Jorge Mendes einn færasti umboðsmaður í bransanum hefur hug á því að koma skjólstæðingi sínum Geovany Quenda frá Sporting Lisbon næsta sumar.
Quenda er 17 ára gamall bakvörður en Mendes telur að mörg stórlið muni reyna að fá hann næsta sumar.
Quenda er orðaður við Manchester United eins og flestir leikmenn Sporting Lisbon eftir að Ruben Amorim tók við.
Quenda er í U21 árs landsliði Portúgals þrátt fyrir ungan aldur.
Mendes telur að hann gæti hentað vel fyrir Manchester United samkvæmt enskum miðlum.