Flestir á Bretlandseyjum vilja fá Alan Shearer til að taka við Match of the Day þættinum þegar Gary Lineker hættir í starfi næsta vor.
Lineker hefur lengi stýrt þessum vinsælasta þætti BBC þar sem farið er yfir leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Shearer hefur lengi verið sérfræðingur í þættinum en gæti nú tekið stjórn hans.
BBC er að skoða kostina sína en Mark Chapman, Alex Scott, Gabby Logan og Kelly Somers hafa verið orðuð við starfið.
Shearer er fyrrum framherji Newcastle og enska landsliðsins en 22 prósent vilja sjá hann taka við þættinum.