Hinn 18 ára gamli Endrick hjá Real Madrid vill spila meira og er að reyna að komast á lán í janúar til þess að reyna að komast í betri takt.
Endrick er 18 ára gamall en hann kom til Real Madrid í sumar frá Palmeiras á 60 milljónir punda.
Hann er eitt mesta efni fótboltans en Sport á Spáni segir að Southampton sé að vinna í því að fá hann á láni.
Fleiri lið standa í röð og bíða eftir ákvörðun, má þar nefna AS Roma og Real Valladolid sem vilja nýta hann.
Endrick gæti fengið tækifæri hjá Southampton til að blómstra, liðinu vantar öfluga menn fram á við.