Þetta segir Thelma Rut Haukdal Magnúsdóttir í aðsendri grein á Vísi í morgun. Thelma, sem skipar 7. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir í grein sinni frá 27 ára systur sinni sem ákvað nýlega að flytja með litlu fjölskylduna sína til Spánar.
„Hún fann þar sitt drauma nám og þau voru líka orðin þreytt á efnahagslegri óvissu á Íslandi, þar sem verðbólgan og hækkandi kostnaður hefur mikil áhrif á ungt fólk sem er byrjað að búa. Það er raunveruleiki sem við getum flest öll tengt við í núverandi ástandi,“ segir hún.
Thelma segir að á Spáni hafi fjölskyldan upplifað að þau fái frekar tækifæri til þess að njóta þess tíma sem þau hafa með börnunum á meðan þau eru lítil.
„Þau hafa því ákveðið að þau séu ekkert endilega að koma aftur heim. Þau hafa ekki áhuga á því að tapa æskunni í þessu hamstrahjóli sem einkennir okkar samfélag vegna ótryggs efnahagsástands og ríkisstjórnar sem hefur lagt áherslu á sérhagsmunagæslu,“ segir hún.
Thelma segist vissulega syrgja það að fjölskyldan sé flutt út og það hafi verið mikill missir fyrir hana persónulega.
„Ekki bara vegna þess að ég mun sakna hennar, heldur líka vegna þess að þau sjá ekki endilega farsæla framtíð á Íslandi vegna ástandsins. Það er erfitt að horfa á eftir fólki sem maður elskar finna betri tækifæri handan hafsins. Það sem mér finnst verst er að svo margir eins og hún eru að fara. Þegar menntað og metnaðarfullt fólk fer, missum við ekki bara hæfileika, heldur líka tækifæri – og það er okkar tap. Þetta er áminning um það að við verðum að bæta lífskjör ef við ætlum að vinna að því að fólk vilji vera hér, og velji Ísland sem framtíðarbúsetukost,“ segir Thelma.
Hún bendir á að Viðreisn standi fyrir stefnu sem miðar að því að bæta hag barna og fjölskyldna. Markmiðið sé að lækka verðbólgu og vexti með því að taka til í ríkisfjármálum.
„Við ætlum þannig að skapa öflugt og stöðugt efnahagsumhverfi. Við viljum að fólk eins og systir mín vilji vera hér, eða að minnsta kosti sjá hag sinn í því að koma aftur heim. Þess vegna þurfum við að leggja áherslu á að skapa þeim örugg lífskjör.“
Grein Thelmu má lesa í heild sinni hér.