fbpx
Miðvikudagur 19.mars 2025
Fókus

Kynlífsóðu klámstjörnunni sparkað úr landi

Fókus
Þriðjudaginn 19. nóvember 2024 08:11

Bonnie Blue og Annie Knight.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska klámmyndaleikkonan Bonnie Blue hefur verið að gera allt vitlaust út um allan heim fyrir að bjóða 18 og 19 ára drengjum að sofa hjá sér gegn því að fá að birta efnið á OnlyFans-síðu sinni.

Hefur hún til dæmis sett upp bækistöðvar á háskólasvæðum, í Nottingham til dæmis, í leit að ungum körlum til að stunda kynlíf með. Sögðu breskir fjölmiðlar frá því á dögunum að hún hefði stundað kynlíf með 158 karlmönnum í Nottingham og grætt á tá og fingri á því að selja efnið.

Sjá einnig: Segist ekki vera kynferðislegt rándýr en 16 þúsund manns eru ósammála

Á dögunum var greint frá því að vegabréfsáritun Bonnie í Ástralíu hefði verið afturkölluð eftir að hún auglýsti eftir „rétt svo löglegum 18 ára drengjum“ til að stunda kynlíf með. Var það gert á grundvelli þess að hún hugðist vinna í Ástralíu.

Bonnie og vinkona hennar, ástralska klámmyndaleikkonan Annie Knight, hafa ekki látið deigan síga og eru þær stöllur staddar á Fídjíeyjum þessa dagana í sama tilgangi þar sem þær leita að ungum karlmönnum til að stunda kynlíf með.

Sjá einnig: Svaf mest hjá 22 karlmönnum á einu kvöldi – Biðu í röð fyrir utan hótelherbergið hennar

Ástralski fjölmiðillinn News.com.au greinir frá því að báðum verði vísað úr landi þar sem þær hafa gerst uppvísar að því að brjóta reglur í landinu með því taka upp klámfengið efni.

Haft er eftir Pio Tikoduadua, ráðherra innanríkismála á Fídjíeyjum, að Bonnie að minnsta kosti verði sparkað úr landi. Nefndi hann hana sérstaklega á nafn í yfirlýsingu sinni.

Var þessi ákvörðun tilkynnt eftir að annar ráðherra, Viliame Gavoka, viðraði áhyggjur sínar af því að Bonnie og Annie væru að skaða ímynd Fídjíeyja en efnahagur landsins reiðir sig að miklu leyti á ferðamenn.

Skömmu áður en Pio greindi frá ákvörðun sinni höfðu Bonnie og Annie birt færslu á samfélagsmiðlum þar sem þær „grobbuðu sig af afrekum gærdagsins“ eins og það er orðað í frétt ástralska miðilsins. Sögðust þær þegar hafa sofið hjá 24 einstaklingum en „mikil vinna“ væri fram undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Beggi fékk boð um nám í Bandaríkjunum – ,,Það kviknaði mikill ótti hjá mér“

Beggi fékk boð um nám í Bandaríkjunum – ,,Það kviknaði mikill ótti hjá mér“
Fókus
Í gær

Leikkona sakar hertogahjónin um að vera atvinnufórnarlömb – „Það er árið 2025 og enginn nennir fórnarlömbum lengur“

Leikkona sakar hertogahjónin um að vera atvinnufórnarlömb – „Það er árið 2025 og enginn nennir fórnarlömbum lengur“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – „Ég veit að það er staðreynd að fólk hefur hlegið að mér og dæmt mig“

Vikan á Instagram – „Ég veit að það er staðreynd að fólk hefur hlegið að mér og dæmt mig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þórdís var 8 ára þegar martröðin byrjaði – „Hann fór að kenna mér klámvísur en fór svo að snerta mig og misnota“

Þórdís var 8 ára þegar martröðin byrjaði – „Hann fór að kenna mér klámvísur en fór svo að snerta mig og misnota“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Egill leitar að dýrum grip sem týndist fyrir 20 árum

Egill leitar að dýrum grip sem týndist fyrir 20 árum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Blindur eftir notkun þyngdartapslyfs

Blindur eftir notkun þyngdartapslyfs
Fókus
Fyrir 5 dögum

Óvænt áhrif Ozempic á ástarlífið – Fyrrverandi kærastar skyndilega fullir eftirsjár

Óvænt áhrif Ozempic á ástarlífið – Fyrrverandi kærastar skyndilega fullir eftirsjár
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nýliðar ársins með nýtt lag

Nýliðar ársins með nýtt lag