Síðasti þingfundur fyrir kosningar var á Alþingi í dag. Raunar voru þrír þingfundir með stuttu millibili. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins var á meðal viðstaddra en það virðist ekki hafa átt við um alla þingmenn og á Facebook-síðu sinni hæðist Diljá að tveggja manna þingflokki Miðflokksins fyrir að annars vegar mæta ekki og hins vegar fyrir að hafa bersýnilega fylgst illa með þingstörfunum undanfarið:
„Í dag var 50% mæting hjá þingflokki Miðflokks í þingstörf, sem er vel yfir meðaltali. Þar notaði þingmaður þeirra tækifærið og skammaði mig fyrir afgreiðslu efnahags- og viðskiptanefndar við að hækka álögur á jarðefnaeldsneyti. Þingmenn Miðflokks hafa lítið tekið þátt í þingstörfum undanfarnar vikur (og reyndar almennt) og hafa því greinilega misst af því að við vísuðum þar frá kílómetragjaldsmálinu og lækkuðum fyrirhugaðar álögur á eldsneyti um helming. Það borgar sig að mæta í vinnuna.“
Þarna er Diljá Mist væntanlega að vísa í ræðu Bergþórs Ólasonar þingmanns Miðflokksins sem sagði:
„Virðulegur forseti. Hér kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum gríðarlega mikil hækkun á kolefnisgjöldum sem ekki var gert ráð fyrir þegar málið var lagt fram í byrjun, sem sagt bandormurinn. Bara til að halda því til haga þá endar gjald sem upphaflega stóð í 13,45 kr. í 21,40 eftir þessa breytingu. Gjald sem stóð í 11,70 endar í 18,60 og svona koll af kolli. Þetta er auðvitað gríðarlega mikil hækkun og kaldhæðnislegt að þetta sé lausnin til að bregðast við mögulegu fýlukasti hæstvirts fjármálaráðherra vegna afgreiðslu á kílómetragjaldi. En það er ágætt að það liggi fyrir að háttvirtur þingmaður Diljá Mist Einarsdóttir leiði þetta hér inn í þingsalinn.“
Bergþór virðist gagnstætt því sem Diljá Mist fullyrðir, hafa verið meðvitaður um að umdeildu frumvarpi Sigurðar Inga Jóhannssonar um kílómetragjald hafi verið slegið á frest en á þingfundi síðastliðinn föstudag var niðurstaðan að vísa því aftur til ríkisstjórnarinnar.
Í síðustu viku lagði meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar til að í ljósi að ekki yrði af frumvarpi um kílómetragjald að kolefnisgjald yrði hækkað um 2,5, prósent.
Þingmennirnir vísa ekki í tilteknar greinar í þessum bandormi ( breyting á ýmsum lögum, innsk. DV) en allar breytingartillögur meirihluta efnahags og viðskiptanefndar um hækkanir á gjöldum á eldsneyti voru samþykktar síðasta föstudag. Það verður því ekki betur séð en að það sé rétt hjá Diljá Mist að þessar hækkanir hafi ekki átt að koma Bergþóri á óvart í dag.