Nicolas Pepe fyrrum leikmaður Arsenal á í ástarsambandi við klámstjörnu en um er að ræða Teanna Trump. Þau fóru saman út að borða um helgina.
Kjaftasögur hafa verið í gangi um samband þeirra en Trump var mætt á leik hjá Pepe um daginn.
Pepe er leikmaður Villarreal á Spáni í dag og var Trump mætt á fyrsta leik tímabilsins, sat hún í flottustu sætunum á vellinum.
Raunverulegt nafn klámstjörnurnar er Keanna Nichele Jones en þau skelltu sér út að borða um helgina.
Þau hafa reglulega verið að birta myndir sem virðast gefa það í ljós að þau séu nú saman.
Pepe átti mjög erfiða tíma hjá Arsenal en kantmaðurinn frá Fílabeinsströndinni kostaði liðið mikið en skilaði litlu.