Tvær enskar vonarstjörnur mættu saman í myndatöku og viðtal hjá GQ nú á dögunum en myndir af þeim voru birtar í gær.
Um er að ræða þá Cole Palmer og Kobbie Mainoo sem eru hægt og rólega að verða lykilmenn fyrir enska landsliðið.
Palmer er leikmaður Chelsea og þá þeirra mikilvægasti maður en hann er þekktur fyrir að vera ansi rólegur og er lítið fyrir það að vekja athygli utan vallar.
Það sama má segja um Mainoo sem leikur með Manchester United og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á miðjunni þar.
Félagarnir mættu í myndatöku fyrir nýjasta blað GQ í vikunni sem ber heitið ‘Men of the Year’ eða menn ársins.
Skemmtilegar myndir sem má sjá hér fyrir neðan.