Nýr þáttur af Íþróttavikunni er kominn út en þar er Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra gestur þeirra Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar.
Willum er auðvitað á fullu í kosningabaráttu og er komið inn á komandi kosningar þó íþróttirnar séu í brennidepli í þættinum.
Farið er yfir komandi leiki íslenska karlalandsliðsins í Þjóðadeildinni og miklu fleira.
Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum eða hlusta á helstu hlaðvarpsveitum.
Íþróttavikan er í boði Bola léttöl og Lengjunnar