Mike Tyson er goðsögn í bransanum en hann er þrjátíu árum eldri en Jake Paul.
Í gærkvöldi mættust þeir til að láta vigta sig fyrir bardagann og stilltu sér upp fyrir framan hvorn annan. Það gekk ekki vel en skyndilega sló Tyson Paul utan undir, en glöggir netverjar hafa bent á að Paul hafi stigið á fót Tyson þegar hann kom upp að honum og þá hafi Tyson misst stjórn á skapi sínu.
Paul sagðist ekki hafa fundið fyrir þessu og er tilbúinn í bardagann.