Hin umdeilda Madelene Wright hefur sett allt á hliðina eftir að hún birti mynd af sér á Instagram þar sem hún er ekki í neinum nærbuxum.
Madelene er fyrrum leikmaður Charlton en var rekin þaðan árið 2021. Hún hafði deilt myndböndum af sér að taka inn hláturgas, sem er ekki vel liðið innan fótboltans.
Annað myndband fór í umferð af henni að drekka áfengi á meðan hún brunaði áfram á bifreið sinni. Þriðja myndbandið sýndi svo Madelene stunda kynlíf á meðan hún talaði í símann.
Síðan Madalene var rekin hefur hún grætt á tá og fingri með því að birta efni á OnlyFans, þar sem hún er afar vinsæl.
Hún setti mynd á Instagram með hlekk á síðu sína þar sem borga þarf fyrir myndir og myndbönd af henni.