Hann gekk inn í Planet Fitness á föstudaginn og fór í sólbekk og þar virðist hann hafa legið í þrjá sólarhringa. Fjölskylda hans hafði samband við lögregluna á sunnudaginn og tilkynnti um hvarf hans.
Á mánudagsmorgun fundu gestir og starfsfólk líkamsræktarstöðvarinnar mikinn óþef leggja um húsakynnin og reyndust upptökin vera í sólbekknum þar sem Sink lá.
Fox News skýrir frá þessu og hefur eftir lögreglunni að unnið sé að rannsókn málsins og að eins og staðan sé núna sé ekki vitað hver dánarorsök Sink var.
Einn af gestunum, sem voru í líkamsræktarstöðinni á mánudaginn, sagðist í samtali við Fox News furða sig á að það sé hægt að liggja dáinn í sólbekk í þrjá sólarhringa án þess að finnast.