Falleg fjögurra herbergja íbúð á Skerjabraut 3 á Seltjarnarnesi er komin í sölu hjá Fasteignamarkaðinum.
Eignin er fjögurra herberbergja, 137,0 fermetrar og þar af er geymsla 10,3, íbúð í fjöleignarhúsi sem byggt var árið 2015.
Íbúðin, sem er með aukinni lofthæð að hluta, skiptist í inngang, forstofu, stofu/borðstofu, eldhús og baðherbergi á neðri hæð. Á efri hæð er gangur, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Rúmgóðar svalir eru út frá stofum á neðri hæð og stór 34,6 fermetra verönd til suðvesturs frá gangi efri hæðar og möguleiki að byggja yfir.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.