Bókakonfekt Forlagsins heldur áfram í kvöld kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 í Reykjavík. Kvöldið er annað af fjórum en á þeim koma höfundar höfundar Forlagsins og kynna bækur sínar fyrir gestum, spjalla um þær og lesa upp úr þeim.
Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft.
Lesið verður upp úr eftirfarandi bókum:
Í djúpinu – Margrét Höskuldsdóttir
Þegar sannleikurinn sefur – Nanna Rögnvaldardóttir
Múffa – Jónas Reynir Gunnarsson
Kul – Sunna Dís Másdóttir
Gegnumtrekkur – Einar Lövdahl
Flaumgosar – Sigurbjörg Þrastardóttir
Ég hugsa mig – Anton Helgi Jónsson
Kasia og Magdalena – Hildur Knútsdóttir
Mennska – Bjarni Snæbjörnsson