Neymar hefur tjáð sig eftir sögusagnirnar undanfarið um að hann sé á förum frá liði Al-Hilal í Sádi Arabíu.
Neymar hefur verið orðaður við brottför eftir þrálát meiðsli en hann hefur spilað einn leik síðan undir lok 2023.
Talið er að Santos í Brasilíu, heimalandi Neymar, sé að horfa til leikmannsins sem er á risalaunum í Sádi.
,,Að fá tækifærið til að spila hér og í þessu landi er mikilvægt fyrir marga. Ég hef fengið frábærar móttökur,“ sagði Neymar.
,,Ég er mjög ánægður og er viss um að staðan muni batna. Það munu fleiri stjörnur semja hérna og vonandi fá þær að upplifa það sem ég hef fengið að gera.“
Athyglin vekja ansi mikla athygli þar sem Neymar hefur aðeins spilað þrjá deildarleiki eftir komu til félagsins í fyrra.