Diletta Leotta er byrjuð að vinna aftur í sjónvarpi á Ítalíu eftir barnsburð og ferðalag um heiminn með unnusta sínum, Loris Karius.
Leotta hafði verið mikið í Newcastle þar sem Karius var áður en samningur hans þar rann út í sumar.
Leotta er afar vinsæl í starfi en hún var mætt til starfa á sunnudag í leik Inter og Napoli.
Fatnaður Leotta vekur þar gríðarlega athygli en hún var í gegnsæjum bol sem vakið hefur umræðu.
Óvíst er hvort Karius sé hættur í fótbolta en þessi 31 árs markvörður er frægastur fyrir mistök sín í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2018 þegar hann lék með Liverpool.