Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni var í síðustu viku boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot.
Hann er undir rannsókn fyrir að nauðga tveimur konum og eitt kynferðisbrot.
Maðurinn var fyrst handtekinn í London sumarið 2022 þar sem hann var grunaður um nauðgun. Hann hefur spilað fyrir félag sitt allt frá því að málið komið upp.
Hann mætti á lögreglustöð í London á fimmtudag í síðustu viku.
„Lögreglan rannsakar málið þar sem grunur er um brot frá árinu 2021 til ársins 2023,“ segir í yfirlýsingu lögreglunnar.
„Hann var handtekinn í júlí árið 2022 en hefur síðan í tvígang verið boðaður í yfirheyrslu.“
Málið er því enn á borði lögreglu en maðurinn er sagður mjög þekktur en ensk blöð hafa ekki leyfi til að nafngreina hann.