Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og Gunnar Smári Egilsson stofnandi Sósíalistaflokksins og oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður eru nýtt par.
Smartland greinir frá og segir hafa sést til parsins saman í Borgarleikhúsinu og víðar.
11 ára aldursmunur er á parinu, Gunnar Smári er fæddur 1961 eog Oddný Eir 1972.
Gunnar Smári er ábyrgðarmaður frétta hjá Samstöðinni, og var einn af eigendum og ritstjóri Fréttatímans.
Oddný Eir lærði heimspeki við Háskóla Íslands og vann í útvarpi samhliða námi. Hún er með meistarapróf í stjórnmálaheimspeki og lauk DEA-prófi frá Sorbonne-háskóla í Frakklandi. Hún hélt doktorsnáminu áfram í EHESS-háskóla Parísarborgar. Oddný Eir hefur starfað lengi á safnavettvangi og í myndlistarheiminum við rannsóknir, ritstjórn, kennslu, skriftir og sýningarstjórnun.
Ljóðabókin Snjór piss hár kom út árið 2000. Árið 2004 sendi Oddný frá sér sína fyrstu skáldsögu Opnun kryppunnar. Oddný Eir hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Rauðu fjaðrarinnar, hlotið Fjöruverðlaunin og Bókmenntaverðlaun Evrópu fyrir bækur sínar.
Að vori 2015 kom út sjálfsævisöguleg bók Oddnýjar, esseyjan Blátt blóð: í leið að kátu sæði . Þar fjallar Oddný um persónulega reynslu sína af ófrjósemi og þeirri sterku þrá að eignast barn. Amazon Crossing keypti útgáfurétt bókarinnar og gaf söguna út í raftímaritinu Day One og í kjölfarið sem sjálfstæða rafbók.