fbpx
Fimmtudagur 26.desember 2024
Fréttir

Sakar Carbfix um að gaslýsa almenning – „Þar erum við meðal annars að tala um blásýru“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 11. nóvember 2024 15:30

Stefnt er að því að flytja efnið inn í gegnum Straumsvík. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúi í Vallahverfinu segir fyrirtækið Carbfix gaslýsa almenning hvað varðar hina fyrirhuguðu niðurdælingarstöð Coda Terminal. Niðurdælingin, meðal annars á snefilefnum af blásýru og öðrum efnum, muni eiga sér stað í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð frá heimilum fólks og vatnsverndarsvæðum.

Coda Terminal verkefnið hefur reynst mjög umdeilt og íbúar á Völlunum eru margir hverjir mjög uggandi yfir því sem þeir segja vera risastórt tilraunaverkefni nálægt mannabyggð. Einkum hefur fólk áhyggjur af vatnsbúskapnum neðanjarðar, en þegar kolefni er dælt niður þarf að dæla miklu magni vatns í burtu.

Stíft regluverk

Vegna mótmæla almennings hefur bæjarstjórn dregið í land með verkefnið. Yfirlýsing hefur verið gefin út um að verkefnið verði ekki samþykkt nema að undangenginni íbúakosningu um málið. Þess vegna hafa fulltrúar Carbfix auglýst verkefnið og ritað greinar um það. Meðal annars Ólafur Einarsson, samskiptastjóri Carbfix, í morgunblaðinu í lok október undir yfirskriftinni „Afeitrum umræðuna.“

„Tíðar endurtekningar á því að verið sé að flytja inn skaðlegan úrgang eða rusl og dæla honum niður eru rangar,“ sagði Ólafur í greininni og vísaði í umhverfismatsskýrslu Eflu um að efnagreining myndi fara fram fyrir affermingu kolefnisins í Straumsvík til að ganga í skugga um að samsetning efnisins uppfylli skilgreiningu í starfsleyfi.

Ólafur Einarsson samskiptastjóri Carbfix

„Af þessu má sjá að stíft regluverk er til staðar til að fyrirbyggja neikvæðu áhrifin sem fyrrnefnd greinaskrif snúast um. Carbfix hefur þegar dælt niður koldíoxíði og brennisteinsvetni í yfir áratug á Hellisheiði án vandkvæða,“ sagði Ólafur.

Þá vísað hann einnig í umsögn heilbrigðiseftirlits um Coda Terminal þar sem sagt var að ekki væri talin mikil hætta á að snefilefni hafi áhrif á strandsjávarhlotið þar sem hámarksstyrkur þeirra væri lágur.

5700 tonn af snefilefnum

Við þessa grein skrifar Elínrós Erlingsdóttir, svæfingahjúkrunarfræðingur og íbúi í Vallahverfinu, svargrein í dag á Vísi og sakar fyrirtækið um að „gaslýsa almenning.“

„Ef þrjár milljónir tonna af koldíoxíð munu vera flutt inn árlega til Íslands frá stóriðju Evrópu þá munu fylgja því um 5700 tonn af öðrum efnum sem sum hver geta verið skaðleg mönnum og náttúru. Þar erum við meðal annars að tala um blásýru,“ segir Elínrós í greininni. „Niðurdælingin á að eiga sér stað í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð frá heimilum fólks og vatnsverndarsvæðum. Einnig eru Kaldárbotnar, neysluvatnsból Hafnfirðinga, í aðeins um 4,5 km í loftlínu frá væntanlegri niðurdælingu.“

Sætta sig ekki við óvissuna

Bendir Elínrós á að bannað sé að skerða magn og gæði grunnvatnshlota. Coda Terminal myndi  nota meira magn af grunnvatni en allt höfuðborgarsvæðið á hverjum sólarhring. Það gefi auga leið að slíkt hljóti að skerða magn hlotsins og 5700 tonn af snefilefnum frá stóriðju í Evrópu í 30 ár muni skerða gæði þess. Margir Hafnfirðingar geti ekki sætt sig við þessa óvissu.

Elínrós Erlingsdóttir svæfingahjúkrunarfræðingur og íbúi á Völlunum.

„Carbfix reynir enn og aftur að gaslýsa almenning með skrifum sínum,“ segir Elínrós og nefnir að samanburðurinn við Hellisheiði sé rangur. Þar sé verið að dæla niður koldíoxíði sem eigi uppruna í jarðvarmavirkjun, ekki alls konar iðnaði í Evrópu þar sem skaðleg aukaefni verða til. Þá sé magnið sem áætlað sé að dæla niður við Vellina þúsund sinnum meira en á Hellisheiði, það er þrjár milljónir tonna á móti þrjú þúsund.

„Leyfum náttúrunni og íbúum að njóta vafans. Tökum hagsmuni almennings og náttúrunnar fram yfir hagsmuni Orkuveitu Reykjavíkur og erlendra fjárfesta í Coda Terminal,“ segir hún að lokum. „Það búa um 15000 manns í nálægð við væntanlega niðurdælingu útblástur frá erlendri stóriðju.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eiginkona Assads sögð ætla að sækja um skilnað

Eiginkona Assads sögð ætla að sækja um skilnað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Siggi lýsir fyrstu jólunum án sonarins sem lést á árinu – „Maður er foreldri áfram. Maður verður að sýna andlitið“

Siggi lýsir fyrstu jólunum án sonarins sem lést á árinu – „Maður er foreldri áfram. Maður verður að sýna andlitið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigríður segir Helga ekki geta verið vararíkissaksóknari þrátt fyrir úrskurð ráðherra – „Ber meiri keim af einelti en lögfræði“

Sigríður segir Helga ekki geta verið vararíkissaksóknari þrátt fyrir úrskurð ráðherra – „Ber meiri keim af einelti en lögfræði“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvikmyndagerðarmaður auglýsir eftir uppljóstrara – „Ef þú býrð yfir upplýsingum sem snerta okkur öll…“

Kvikmyndagerðarmaður auglýsir eftir uppljóstrara – „Ef þú býrð yfir upplýsingum sem snerta okkur öll…“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sólveig Anna óttast ekki Sigurð G. og SVEIT – „Bring it on“

Sólveig Anna óttast ekki Sigurð G. og SVEIT – „Bring it on“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Þessi matvæli eiga alls ekki að geymast í ísskáp

Þessi matvæli eiga alls ekki að geymast í ísskáp