fbpx
Fimmtudagur 26.desember 2024
Fréttir

Sakaði fasteignasala um að svindla á sér en fór í hart gegn aðstoðarmanni hans

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 11. nóvember 2024 12:30

Deilan snýst um kaup á lóðum á ónefndri landareign. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Skjáskot/Google Earth.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur sent frá sér úrskurð sinn í máli manns sem var afar ósáttur við viðskipti sín við ónefndan fasteignasala. Sakaði maðurinn fasteignasalann um margvísleg brot og að hafa með þeim valdið sér fjárhagstjóni. Krafðist maðurinn endurgreiðslu og skaðabóta, alls 7,6 milljónir króna. Maðurinn beindi einnig ásökunum sínum að aðstoðarmanni fasteignasalans en kaus að beina kröfum sínum, fyrir nefndinni, alfarið að honum. Af þessum sökum hafnaði nefndin kröfum mannsins.

Maðurinn fór fram á endurgreiðslu á gjöldum sem hann greiddi í tengslum við kaup á lóðum, auk skaðabóta.

Maðurinn keypti lóðir á ónefndri landareign fyrir milligöngu fasteignasalans en segir í kvörtun sinni til nefndarinnar að hann hafi ekki getað byggt á landareigninni vegna fasteignasalans og aðstoðarmanns hans. Sagði maðurinn þessa aðila auk seljanda lóðanna hafa nýtt sér þekkingarleysi hans og með markvissum hætti haldið frá honum fullbúnu afriti kaupsamnings sem fasteignasalinn hafi skrifað undir fyrir hönd mannsins án þess að honum gæfist tækifæri til að skoða samninginn áður. Maðurinn sagðist ekki hafa verið upplýstur um ákvæði í kaupsamningi um vatnsból sem ekki hafi verið að finna í söluyfirliti.

Of há gjöld

Maðurinn sagði enn fremur að aðstoðarmaður fasteignasalans hefði vanrækt að veita honum afrit af deiliskipulagi þar sem kom fram að óheimilt sé að selja land undir húsnæði nema að neysluvatn og brunavarnir hafi verið tryggðar. Þá hafi aðstoðarmaðurinn krafið manninn um of há stimpil- og miðlunargjöld. Loks hafi aðstoðarmaðurinn vanrækt að skrá allar lóðirnar á eignarbréf sóknaraðila og úthlutað röngum „F númerum“ í stað „L númera“.

Maðurinn krafðist þess að aðstoðarmanninum yrði gert að endurgreiða helming stimpilgjalda auk skrifstofu- og fasteignagjalda. Þar auki krafðist maðurinn bótagreiðslu frá aðstoðarmanni fasteignasalans. Heildarkrafa mannsins nam um 7,6 milljónum króna.

Aðstoðarmaðurinn hafnaði kröfum mannsins alfarið og sagði meðal annars í andsvörum sínum að maðurinn hafi sannarlega verið upplýstur um að kaupandi bæri ábyrgð á að finna og útvega vatn.

Beindi málinu að röngum manni

Í niðurstöðu Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa kemur fram að aðstoðarmaður fasteignasalans hafi verið í samskiptum við manninn vegna sölunnar og sinnt tilteknum verkefnum sem tengdust henni en samkvæmt gögnum málsins hafi fasteignasalinn annast söluna.

Segir nefndin að sakvæmt lögum um sölu fasteigna beri fasteignasali ábyrgð á tjóni sem þeir valda sem starfi í hans þágu við fasteignasölu. Í lögunum segi einnig að fasteignasala beri sjálfum að sinna þeim verkefnum sem löggilding hans nái til. Honum sé þó heimilt að fela einstaklingum sem starfa hjá honum eða félagi hans um fasteignasölu einstök afmörkuð verkefni við sölu einstakra eigna. Samkvæmt lögunum beri fasteignasali ábyrgð á tjóni sem hann eða starfsmenn hans valdi í störfum sínum, af ásetningi eða gáleysi.

Vísar nefndin einnig til ákvæða skaðabótalaga sem kveði á um að hafi starfsmaður valdið tjóni sem munatrygging, rekstrarstöðvunartrygging eða ábyrgðartrygging vinnuveitanda hans taki til sé starfsmaðurinn ekki skaðabótaskyldur nema tjónið verði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis.

Nefndin segir það því vera skýrt að fasteignasalinn í þessu máli hafi borið ábyrgð á því tjóni sem hann og starfsmenn hans kunni að hafa valdið í störfum sínum. Þar sem maðurinn beini kvörtun sinni að aðstoðarmanni fasteignasalans en ekki fasteignasalanum sjálfum sé kröfum mannsins á hendur aðstoðarmanninum hafnað en nefndin bætir við að aðstoðarmaðurinn hafi ekki sýnt af sér stórfellt gáleysi eða ásetning.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Listinn lengist – Þessir háttsettu Rússar hafa verið myrtir í Rússlandi

Listinn lengist – Þessir háttsettu Rússar hafa verið myrtir í Rússlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sýknaður af ákæru um heimilisofbeldi – Brotið þótti ekki nógu alvarlegt

Sýknaður af ákæru um heimilisofbeldi – Brotið þótti ekki nógu alvarlegt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lektor bendir á yfirgengilega framkomu fyrirtækjaeiganda í Skipholti – „Hún er því miður að gera þetta af einhvers konar illgirni“

Lektor bendir á yfirgengilega framkomu fyrirtækjaeiganda í Skipholti – „Hún er því miður að gera þetta af einhvers konar illgirni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dyraat hjá kennara endaði illa – Greip um úlnlið drengsins og dró hann að heimili sínu

Dyraat hjá kennara endaði illa – Greip um úlnlið drengsins og dró hann að heimili sínu
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Ófögnuðurinn blasir við ferðamönnum við komuna til Íslands

Ófögnuðurinn blasir við ferðamönnum við komuna til Íslands
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Netverjar bjartsýnir eftir kynningu nýrrar ríkisstjórnar – „Faðmlag segir meira en 1000 orð“

Netverjar bjartsýnir eftir kynningu nýrrar ríkisstjórnar – „Faðmlag segir meira en 1000 orð“