fbpx
Fimmtudagur 26.desember 2024
Fréttir

Foreldrar barna í Laugalækjarskóla fengið nóg

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. nóvember 2024 09:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Foreldrar barna í Laugalækjarskóla hafa þungar áhyggjur af stöðu barna sinna sem nú hafa ekki getað mætt í skólann síðan verkfall hófst þann 29. október. Allt útlit er fyrir að þau muni sitja heima þar til 22. nóvember.

„Slíkt rof á skólagöngu barna hefur mikil áhrif, ekki bara á hefðbundið nám nemenda, heldur getur það haft veruleg neikvæð félagsleg áhrif,“ segir í ályktun sem stjórn foreldrafélags Laugalækjarskóla hefur sent frá sér.

Í ályktuninni er vísað í yfirlýsingu sem umboðsmaður barna sendi frá sér vegna verkfallsins þar sem fram kom að þó verkfallsrétturinn sé óumdeildur verði ekki litið fram hjá því að börn séu skólaskyld og þau eigi stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu. Er það mat umboðsmanns að börnum í þeim skólum sem eru í verkfalli sé mismunað hvað varðar rétt þeirra til menntunar.

„Við foreldrar deilum áhyggjum umboðsmanns barna og finnum sterkt fyrir því að það umrót sem nú er í lífi barnanna okkar hefur neikvæð áhrif. Við krefjumst þess að deilan verði leyst strax. Við áréttum að sveitarfélög bera ábyrgð á að veita börnum menntun og þurfa að tryggja jafnan rétt til náms með öllum hætti. Við tökum undir með umboðsmanni barna að það er sjálfsögð krafa að Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sé fylgt. Í því felst meðal annars að lagt verði mat á áhrif þessara aðgerða á börnin og gripið til mótvægisaðgerða þeim til heilla,“ segir í ályktuninni.

Þá kemur fram að undanfarið hafi birst greinileg merki neikvæðrar þróunar sem tengjast áhættuhegðun og félagslegu umhverfi barna. Margir aðilar sem styðji börn á Íslandi, svo sem kennarar, skólastjórnendur, foreldrar og starfsfólk félagsmiðstöðva séu byrjaðir að grípa til aðgerða en nú séu blikur á lofti.

„Við foreldrar finnum mjög vel fyrir því að félagslegt umhverfi unglinga er viðkvæmt um þessar mundir og það hefur mjög neikvæð áhrif á unglinga að upplifa þann losarabrag og reiðileysi sem fylgir rofi á skólagöngu og rútínu hversdagsins. Leitandi og áhrifagjörn ungmenni geta á skömmum tíma umturnað lífi sínu og misst fótanna. Það umrót sem nú er á lífi unglinga hefur því ekki bara neikvæð áhrif á hefðbundið nám, heldur ekki síður félagsleg áhrif sem geta verið gríðarlega alvarleg. Við hvetjum yfirvöld skóla- og frístundamála hjá Reykjavíkurborg að bregðast strax við og auka félagslegan stuðning og uppbyggilegt frístundastarf á meðan á verkfalli stendur.“

Þá segir í ályktuninni að stjórn foreldrafélagsins geri sér grein fyrir því að verkfallsaðgerðirnar séu vegna þess að ekki hafi náðast samningar á milli Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

„Það er gríðarlega mikilvægt að skólarnir okkar geti laðað til sín öflugt og áhugasamt starfsfólk og þar þurfa að vera í boði samkeppnishæf kjör og góðar starfsaðstæður. Skólastjórnendur hafa lýst yfir áhyggjum af því að erfitt sé að fá fagmenntaða kennara til starfa í skólum landsins og því er mjög mikilvægt að bæta úr. Við foreldrar upplifum að verkfallið veki litla athygli í samfélaginu og hafi þar með ekki þau tilætluðu áhrif að skapa nægilega neyð og þrýsting á samningsaðila. En við, fjölskyldur barnanna, upplifum þessa neyð. Okkar ákall er skýrt. Börn eiga jafnan rétt til menntunar og sveitarfélögum ber að tryggja þann rétt. Leysið kjaradeiluna strax.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Listinn lengist – Þessir háttsettu Rússar hafa verið myrtir í Rússlandi

Listinn lengist – Þessir háttsettu Rússar hafa verið myrtir í Rússlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sýknaður af ákæru um heimilisofbeldi – Brotið þótti ekki nógu alvarlegt

Sýknaður af ákæru um heimilisofbeldi – Brotið þótti ekki nógu alvarlegt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lektor bendir á yfirgengilega framkomu fyrirtækjaeiganda í Skipholti – „Hún er því miður að gera þetta af einhvers konar illgirni“

Lektor bendir á yfirgengilega framkomu fyrirtækjaeiganda í Skipholti – „Hún er því miður að gera þetta af einhvers konar illgirni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dyraat hjá kennara endaði illa – Greip um úlnlið drengsins og dró hann að heimili sínu

Dyraat hjá kennara endaði illa – Greip um úlnlið drengsins og dró hann að heimili sínu
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Ófögnuðurinn blasir við ferðamönnum við komuna til Íslands

Ófögnuðurinn blasir við ferðamönnum við komuna til Íslands
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Netverjar bjartsýnir eftir kynningu nýrrar ríkisstjórnar – „Faðmlag segir meira en 1000 orð“

Netverjar bjartsýnir eftir kynningu nýrrar ríkisstjórnar – „Faðmlag segir meira en 1000 orð“