Út er komin ljósmyndabók með myndum úr safni líffræðingsins Skarphéðins G. Þórissonar, sem vaktaði og rannsakaði hreindýr á Austurlandi í áratugi. Skarphéðinn var einn af þremur sem lést í flugslysi í vöktunarflugi við Sauðahnjúka þann 9. júlí árið 2023.
Bókin heitir Á slóðum íslenskra hreindýra: Í fylgd með Skarphéðni G. Þórissyni. Hún er gefin út af bókaútgáfunni Bókstafi á Egilsstöðum, í minningu Skarphéðins sem var líffræðingur og helsti fræðimaður Íslands í málefnum hreindýra. Skarphéðinn tók mikið af myndum af hreindýrum í náttúru Austurlands.
„Ljósmyndir hans af hreindýrum á öllum árstíðum við hinar ýmsu aðstæður eru ekki aðeins áhugaverðar og fallegar sem myndefni af villtum dýrum heldur birta augnablik í lífi þessara hviku dýra sem við leiðum sjaldan hugann að og sjáum sjaldan og sumir íbúar Íslands jafnvel aldrei,“ segir í færslu Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Austurlandi. „Sambúð manna og hreindýra var Skarphéðni einnig hugleikin, rétt eins og lífsbarátta þeirra og lífshættir á heiðum og öræfum, eins og margar mynda hans af hreindýrum í menningarlandslagi láglendis og mannabyggðar sýna.“
Skarphéðinn var þegar byrjaður að leggja drög að ljósmyndabók þegar hann féll frá í hinu voveiflega slysi. En í því fórust einnig Fríða Jóhannesdóttir spendýrafræðingur og samstarfskona Skarphéðins hjá Náttúrustofu Austurlands og Kristján Orri Magnússon flugmaður. Hafði hann í huga að miða efnistökin við árstíðirnar fjórar sem stýra miklu í lífi hreindýranna. Var bókin hönnuð með það í huga.
„Markmiðið er að sýna brot af þeirri fjölbreyttu birtingarmynd úr lífi hreindýra sem ljósmyndasafn Skarphéðins geymir, hvort heldur sem það er um þau sem hluta af hjörðinni eða sem einstaklinga,“ segir í færslunni.
Ljósmyndirnar voru teknar á löngu árabili, við miserfiðar aðstæður. Elstu myndirnar vor teknar á filmu.