Demókratar, með Kamölu Harris í broddi fylkingar, áttu varla séns þegar á hólminn var komið og fengu Reoúblikanar einnig meirihlutann í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Demókratar eru nú farnir að skoða hvað fór úrskeiðis og vilja einhverjir meina að stórleikarinn George Clooney beri einhverja ábyrgð á því hvernig fór.
Eftir hörmulega frammistöð Joe Biden, sitjandi forseta, í kappræðum gegn Donald Trump urðu þær raddir sífellt háværari að Biden væri ekki nógu heilsuhraustur til að sitja í Hvíta húsinu annað kjörtímabil.
Clooney, sem hefur stutt dyggilega við bakið á Demókrötum, kallaði eftir því í sumar að Biden myndi stíga til hliðar og Kamala Harris taka við keflinu og berjast við Trump um hylli kjósenda. „Við munum ekki vinna kosningarnar í nóvember með þennan forseta,“ sagði Clooney.
Margir telja að þetta ákall stórleikarans hafi orðið til þess að Biden ætti ekki möguleika á að ná endurkjöri og því hafi hann ákveðið að láta gott heita.
Daily Mail segir að margir stuðningsmenn Demókrata séu nú farnir að kenna Clooney um það hvernig fór. Blaðamaðurinn Joshua Hartley birti skjáskot af ákalli Clooney í sumar, sem birtist á síðum New York Times, og sagði: „Þakka þér fyrir, George Clooney.”
Annar sagði að Donald Trump mætti ekki gleyma því að þakka stjörnunum í Hollywood fyrir að hann hafi náð kjöri. „Sérstaklega George Clooney,“ sagði viðkomandi. „Þetta er allt George Clooney að kenna,“ sagði enn annar og aðrir tóku í svipaðan streng.
Meira að segja stuðningsmenn Trump eru þakklátir afskiptum leikarans í sumar og sagði einn Trump hefði gleymt að minnast á „stuðning“ hans í þakkarræðu sinni þegar ljóst var að hann hefði náð kjöri sem forseti Bandaríkjanna.