Olivia, sem er 21 árs, lýsti þessu í viðtali sem birtist á Instagram-síðu Netflix á dögunum.
Þar var hún spurð hvort það væri eitthvað rautt flagg þegar kemur að stefnumótum og er óhætt að segja að Olivia hafi gefið áhugavert svar.
„Ég spyr þá alltaf hvort þeir teldu að þeir hefðu áhuga á því að fara út í geiminn,“ sagði hún og bætti við: „Ef þeir segja já, þá deita ég þá ekki.“
Margir spyrja sig eflaust af hverju hún er svona staðföst varðandi geimferðir og tilvonandi maka. „Ég held bara að ef þú vilt fara út í geim þá ertu dálítið uppfullur af sjálfum þér.“