Þegar svínið kom á Hopo járnbrautarstöðina réðst það á mann og beit hann í hægri handlegginn að sögn JoonAng Daily. Maðurinn hlaut alvarlega áverka en var ekki í lífshættu.
Árásin átti sér stað við salerni á þriðju hæð lestarstöðvarinnar. Að henni lokinni skemmdi svínið glerdyr í afgreiðslunni á fjórðu hæð. Áður en svínið lagði leið sína á lestarstöðina, sást það við veitingastað í Dong-myeon hverfinu.
Lögreglumenn skutu svínið síðan þremur skotum og dugði það til að gera út af við það. Það reyndist vega um 100 kíló og var um 1,5 metrar á lengd.