Thomas Tuchel þjálfari enska landsliðsins fær að vinna meira heima en Gareth Southgate gerði í starfinu. Tuchel tekur við 1. janúar.
Hjá Southgate var það regla að hann vann þrjá daga í viku á æfingasvæði enska landsliðsins í Burton.
Þetta gerði Southgate í átta ár en Tuchel ætlar áfram að vera búsettur í Þýskalandi en verður mikið í Englandi.
Ensk blöð segja að Tuchel hafi fengið það í gegn að sleppa fullt af fundum sem Southgate var látin sitja með þjálfurum enska sambandsins.
Tuchel mun vera mikið á Englandi um helgar að fara á leiki og skoða leikmenn en verður meira í Þýskalandi en ráð var gert fyrir í byrjun.