Antonela Avellaneda er í dag þekktust fyrir að vera fyrirsæta hjá Playboy, hún þakkar Diego Armando Maradona fyrir það að vel hafi tekist til í lífinu.
Antonela er 42 ára gömul í dag en hún var 18 ára gömul þegar Maradona var fertugur og komst í kynni við hana.
Maradona bauðst til að borga fyrir myndatöku sem Antonela vildi fara í, þar sat hún nakin fyrir í fyrsta skipti og Maradona borgaði fyrir það.
„Hann er í raun ástin í mínu lífi, stjarnan mín og fyrirmynd. Ég hitti hann og hann borgaði fyrir þetta og eignaðist myndirnar,“ sagði Antonela.
„Þetta var mjög gaman, hann sá stjörnu og fegurð í mér sem ég sá ekki sjálf,“ sagði Antonela en Maradona hefði orðið 64 ára gamall í síðustu viku.
„Ég sakna hans svo mikið, þetta hjálpaði fjölskyldu minni. Ég opnaði búð í kjölfarið, gat keypt mér bíl. Þetta var frábært.“
„Með peningum frá Maradona gat ég fjárfest í ferli mínum sem fyrirsæta,“ segir Antonela sem nú starfar reglulega fyrir Playboy og segist hafa það gott í lífinu, þökk sé Maradona.