Þetta sagði Trump á kosningafundi í Madison Square Garden í New York nýlega. Repúblikanar telja að stór hluti af útgjöldum hins opinbera sé algjörlega ónauðsynlegur og þess vegna vill Trump gera Musk að formanni nefndar sem á að snúa opinbera geiranum við í leit að „ónauðsynlegum“ útgjöldum og gera tillögu um drastískar endurbætur.
Ef skera á útgjöldin niður um tvo billjarða dollara þá mun það hafa áhrif víða því árleg útgjöld ríkisins eru um 6,75 billjarðar dollara.
Trump hefur ekki sagt neitt um hvort skera eigi útgjöldin niður um þessa upphæð strax eða hvort niðurskurðinum verði hrundið í framkvæmd á nokkrum árum.
En sérfræðingar segja að niðurskurður af þessu tagi muni hafa miklar og alvarlegar afleiðingar og segja að ekki sé hægt að spara svona mikið með því að skera „óþarfa“ útgjöld niður.
„Þetta er alveg fáránlegt,“ sagði Brain Riedl, hjá hugveitunni Manhattan Institute, í samtali við Washington Post.
Marc Goldwein, hjá Committee for a Responsible Federal Budget, sagði að Musk neyðist til að skera öll útgjöld ríkisins niður, þar á meðal til varnar- og félagsmála, um þriðjung ef hann ætlar að ná þessu sparnaðarmarkmiði á einu ári.
En málið er ekki einfalt pólitískt séð. Repúblikanar eru vanir að verjast öllum niðurskurði á útgjöldum til varnarmála og það yrði mjög viðkvæmt pólitískt séð að skrea mikið niður í útgjöldum til félagsmála.
Samkvæmt útreikningum Goldweins þá þarf að skera niður um 80% í öðrum útgjöldum ef komast á hjá niðurskurði í varnar- og félagsmálum.
Brett Arends, greinandi, sagði að þetta geti þýtt að skorið verði niður í fjárfestingu í vegakerfinu, neyðarhjálp, umhverfisverndaráætlunum, dómskerfinu, utanríkisþjónustunni og til geimferðastofnunarinnar NASA. MarkeWatch skýrir frá þessu.
Hann benti einnig á að Trump hafi lofað skattalækkunum upp á 900 milljarða dollara að meðaltali á næstu 10 árum. Hluta af því tekjutapi á að dekka með hærri tollum á innfluttum vörum frá Kína og Evrópu.