Það er ljóst að stuðningsmenn Liverpool eru vongóðir þessa dagana en liðið situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Arne Slot tók við Liverpool í sumar af Jurgen Klopp og er liðið með tveggja stiga forystu á toppnum.
Enginn stjóri í sögu Liverpool hefur byrjað betur en Klopp sem er með átta sigra eftir fyrstu tíu leikina.
Liverpool hefur einnig gert eitt jafntefli og tapaði einum leik og er með 25 stig eftir tíu deildarleiki.
Enginn stjóri í sögu Liverpool í efstu deild hefur afrekað það sama og ber að hrósa Hollendingnum fyrir flott starf hingað til.
8/10 – Liverpool have now won eight of their 10 Premier League games under Arne Slot (D1 L1), the most ever by a Reds manager in his first 10 top-flight matches in charge of the club. Seamless. pic.twitter.com/J0HWXJLmbB
— OptaJoe (@OptaJoe) November 2, 2024