fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Eyjan

Hugsi yfir gagnrýni föður Dags á Kristrúnu – „Korter í kosningar gýs upp valdabarátta“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 31. október 2024 09:10

Dagur B. Eggertsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Færsla Eggerts Gunnarssonar dýralæknis í gær um Kristrúnu Frostadóttir, formann Samfylkingarinnar, vakti mikla athygli. Í færslunni gagnrýnir Eggert Kristrúnu fyrir að hafa tekið reynsluminni einstaklinga fram yfir Dag B. Eggerts­son­, for­manns Borg­ar­ráðs og fyrrum borgarstjóra, og segir Eggert að með þessu hafi Kristrún lítilækkað Dag.

Dag­ur skipar 2. sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og segir Kristrún hann hvorki hafa óskað eftir ráðherraembætti komist Samfylkingin í ríkisstjórn eða eiga von á því, hún ráði í flokknum ekki Dagur.

Eggert er faðir Dags og hann er greinilega ekki sáttur við þessa stöðu hjá Samfylkingunni. Í færslu sinni spyr hann hverj­ir þeir séu „svo þess­ir snill­ing­ar“ á veg­um Kristrún­ar, sem hafi til að bera meiri kosti en son­ur hans til þess að verða ráðherr­a. Segir hann að trúlega sé það allt hið vænsta fólk, en hann telur Dag hafa meira til brunns að bera, bæði hvað varðar reynslu, þekk­ingu og for­ystu­hæfi­leika.

Deilt um Dag

Eins og fram hef­ur komið í fréttum svaraði Kristrún einstaklingi í Grafarvogi í einkaskilaboðum að ef honum hugnaðist Dagur ekki væri minnsta mál að strika hann af kjörseðli í kjörklefanum, Maðurinn birti svarið í íbúahópi Grafarvogs, og fjölmiðlar greindu frá í kjölfarið.

Margir töldu að stirt væri milli þessa for­ystu­fólks flokks­ins, og átöldu Kristrúnu fyr­ir að grafa und­an Degi með þess­um hætti og hvetja til út­strik­ana. Dag­ur var einn gesta í Silfr­inu í RÚV á mánu­dags­kvöld og játaði að sér hefði brugðið við tíðind­in. Hann sagði þau Kristrúnu hafa rætt sam­an í kjölfar frétta af málinu, og hann sáttur og hafa lagt þetta mál fyrir aftan sig.

Af færslu föður hans að dæma er þó ljóst að faðir Dags er ekki sáttur.

Egill segir hollt að flækja ekki málin

Egill Helgason, fjölmiðlamaður, segist telja það hollráð fyrir kosningar að flækja ekki mál um of. „Þetta hefur mér sýnst vera markmið Kristrúnar Frostadóttur. En nú, kortéri í kosningar, gýs upp valdabarátta í Samfylkingunni. Eins og staðan er virðast líkur á stjórn til vinstri vera hverfandi.“

Margir tjá sig um málið undir færslu Egils, kona ein segir: „Alveg ótrúlegur andskoti að maðurinn [Dagur] skuli ekki sjá að hann bara spillir fyrir. Hvað halda menn að Kristrún og hennar fólk hafi tekið mörg svona símtöl……“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir svarar konunni: „Kristrún hefði einfaldlega átt að biðja Dag afsökunar. Það var henni um megn.“

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir vörn föður Dags syni sínum til handa ekki munu ráða því hvaða flokkar komist til valda og að hér verði ekki vinstri stjórn eftir kosningar:

„Hún er lífsseig mýtan um hið splundraða vinstri og hið mjög svo skipulagða hægri. Í dag erum við með Sjálfstæðisflokk, Miðflokk, Lýðræðisflokk, Flokk Fólksins, Viðreisn og Framsókn sem er jú límið. Í öllum þessum flokkum er fólk sem einu sinni kaus Sjálfstæðisflokkinn en fór af því hann var ekki nógu eitthvað fyrir þau. Samfylkingin ákvað, reyndar ekki á landsfundi heldur þremenningaklíkan sem þar öllu ræður, að hún þyrfti að sækja til hægri. Í framboði fyrir flokkinn má núna finna fólk sem var bara í fyrradag yfirlýstir sjálfstæðismenn. Að halda að stór Samfylkingin sé trygging fyrir vinstristjórn er í besta falli vafasamur munaður bjartsýnna manna. Að pabbi Dags þyki vænt um drenginn sinn og verji, þegar á hann er ómaklega hallað, er ekki ástæða þess að hér verði ekki vinstristjórn eftir kosningar. Jöfnuður, umburðarlyndi, frjálslyndi og alþjóðahyggja eða öllu skortur á þessu er höfuð vandi Samfylkingarinnar í dag.“

Kona ein furðar sig á fjölmiðlaumfjöllun:  „Mér finnst nú það sem er athyglisvert hér, að fréttafólk bæði á Rúv og Mbl þurfi að fara á fb og birta mjög eðlileg viðbrögð föður þegar ráðist er að syni hans. Er þetta það sem við ætlum að kjósa um? Mætti ég biðja um að fréttir fjalli um málefnin sem kosið verður um.“

Færsla föður Dags í heild er svona:

Kristrún hef­ur látið að því liggja að komi til þess að Sam­fylk­ing­in myndi rík­is­stjórn verði Dag­ur B. Eggerts­son ekki ráðherra­efni enda sé hann hann [að] feta sig á nýj­um slóðum. Fyr­ir í fleti séu leiðtog­ar flokks­ins í hinum ýmsu kjör­dæm­um. Og hverj­ir eru svo þess­ir snill­ing­ar. Fyr­ir utan hana sjálfa eru það:

Jó­hann Páll Jó­hanns­son, alþing­ismaður til þriggja ára
Arna Lára Jóns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar og rit­ari Sam­fylk­ing­ar­inn­ar
Logi Ein­ars­son, alþing­ismaður og frv. formaður
Víðir Reyn­is­son, yf­ir­lög­regluþjónn
Alma Möller, land­lækn­ir

Allt að sjálf­sögðu hið vænsta fólk. Á móti þessu fólki er Dag­ur veg­inn og met­inn og létt­væg­ur fund­inn þrátt fyr­ir gíf­ur­lega pólitiska reynslu, yf­ir­burða þekk­ingu og síðast en ekki síst ein­staka hæfi­leika til þess að vinna með fólki. Já, það er margt skrítið í …

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Stefnir í afar spennandi nótt hjá Brynjari – Er inni sem jöfnunarmaður

Stefnir í afar spennandi nótt hjá Brynjari – Er inni sem jöfnunarmaður
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Við höfum engan heillandi leiðtoga með sýn og það er okkur erfitt“ 

Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Við höfum engan heillandi leiðtoga með sýn og það er okkur erfitt“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Hægri eða vinstri? Röng spurning. Það þarf hvort tveggja“

„Hægri eða vinstri? Röng spurning. Það þarf hvort tveggja“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stefán Einar birtir kosningaspá sína – Telur að Píratar detti út og Sjálfstæðisflokkurinn taki fram úr Samfylkingunni

Stefán Einar birtir kosningaspá sína – Telur að Píratar detti út og Sjálfstæðisflokkurinn taki fram úr Samfylkingunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gógó Starr hjólar í Sigmund Davíð – „Mjög opinskátt hatursfullur í garð hinsegin- og trans fólks“

Gógó Starr hjólar í Sigmund Davíð – „Mjög opinskátt hatursfullur í garð hinsegin- og trans fólks“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Samkomulag við Arion banka og Landsbankann um fjármögnun First Water

Samkomulag við Arion banka og Landsbankann um fjármögnun First Water