Tugþúsundir miða á tónleika bresku rokksveitarinnar Oasis verða ógiltir og sitja aðdáendur sem keyptu þá eftir með sárt ennið. Um er að ræða miða sem voru ekki keyptir hjá opinberum miðasölum heldur hjá þeim sem áframselja miða.
Breska blaðið The Mirror greinir frá þessu.
Mikið hefur verið skrifað og skrafað um tónleikaferðalag Oasis næsta sumar. En þetta er í fyrsta skipti í fimmtán ár sem bræðurnir Liam og Noel Gallagher munu sjást saman á sviði. Milljónir aðdáenda hafa slegist um miða og færri komast að en vilja.
Ýmislegt hefur gengið á. Meðal annars bilaði sölukerfið þannig stór hluti aðdáenda átti aldrei möguleika á að fá miða þegar þeir voru settir í sölu. Þá olli verðið ólgu, en það hækkaði í takt við eftirspurn.
Nú eru enn ein vandræðin komin upp því að tónleikahaldararnir sem sjá um tónleikana, Live Nation og SJM, hafa tilkynnt að miðar sem keyptir hafa verið hjá Viagogo og fleiri síðum sem áframselja tónleikamiða verði ógiltir.
Um er að ræða meira en 50 þúsund miða, eða um 4 prósent allra miða. Að sögn tónleikahaldaranna verða miðarnir settir aftur í sölu á opinberum miðasölusíðum.
Að sögn þeirra kemur skýrt fram í skilmálum að ekki megi endurselja miðanna. Ekki gangi að endursölusíður hagnist margfallt á miðunum. Eru aðdáendur almennt varaðir við að kaupa miða af endursölusíðum. Þeir miðar geti verið falsaðir eða þá að þeir verði gerðir ógiltir, eins og í þessu tilviki.
Matt Drew, forstjóri Viagogo hefur hins vegar gagnrýnt ákvörðunina harkalega. Sagði hann að aðeins um 2 prósent miða hefðu endað á síðum eins og Viagogo og Stubhub.
„Við munum halda áfram að selja miða eins og reglur segja til um. Við erum að þjónusta viðskiptavini í þörf og við munum hala því áfram,“ sagði Drew.
Þá hafa viðbrögð margra aðdáenda verið blendin. Hafa margir þeirra látið gamminn geisa á samfélagsmiðlum.
„En kjánalegt rugl. Svona fer græðgin með mann,“ sagði einn á samfélagsmiðlinum X. „Þvílíkt vesen til þess eins að sjá tvo miðaldra karla syngja lög sem allir kunna,“ sagði annar.