Það var 1895 sem grasafræðingurinn John Medley Wood fann eina þekkta tréð af tegundinni Encephalartos woodii, oftast nefnt Wood‘s cycad, þar sem nú er Ngoye Forest Reserve í KwaZulu-Natal í Suður-Afríku. Þetta er karltré.
Þessi trjátegund kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um 300 milljónum árum, áður en risaeðlurnar gengu hér um. Hjá sýkjutrjám (cycads) þá eru til karl- og kventré sem eru uppbyggð á mismunandi hátt. Það þarf því tré af báðum kynjum til að þau geti fjölgað sér. En umrætt tré fjölgar sér líka með afleggjurum sem þýðir að litlar greinar vaxa út frá því og geta orðið að sjálfstæðum trjám. Á síðustu öld tóku grasafræðingar hluta af þessum greinum og gróðursettu. Úr þessu urðu til um 500 plöntur sem allar eru í grasagörðum víða um heim.
En þessi aðferð tryggir ekki langtíma tilvist tegundarinnar, það þarf kventré til þess svo að trén geti „makast“ og eignast afkvæmi.
Nú hafa vísindamenn því gripið til þess ráðs að nota dróna við leitina að trjám af þessari tegund í afskekktum og ófærum skógum. Myndir eru teknar og síðan er gervigreind notuð til að fara yfir þær og leita að trjám af þessari tegund.