Bergsveinn Ólafsson, Beggi Ólafs, er búsettur í Kaliforníu þar sem hann stundar doktorsnám í sálfræði. Beggi birtir reglulega pistla um heilsu og lífið almennt á Instagram þar sem er hann er með tæplega 60 þúsund fylgjendur.
Í gær birti hann færslu um 15 atriði sem hann hefur lært eftir að skilja eftir átta ára samband. Beggi var í sambandi með Hildi Sif Hauksdóttur, en sambandi þeirra lauk í byrjun árs 2022.
1. Það mun taka að minnsta kosti eitt ár að jafna sig að fullu.
2. Lokaðu hurðinni og líttu ekki til baka
3. Samþykki og jákvæð merkingarsköpun er lyfið
4. Mundu það slæma við sambandið í stað þess að rifja aðeins upp hversu gott það var
5. Umkringdu þig vinum og fjölskyldu
6. Sorg kemur í bylgjum; Einn daginn líður þér eins og þú sért á toppi heimsins og daginn eftir ertu langt niðri
7. Ekki reyna að vera vinur þinnar/þíns fyrrverandi
8. Taktu á og finndu tilfinningar þínar
9. Haltu áfram að ná markmiðum þínum en leyfðu þér að vera mannleg/ur
10. Njóttu tímans ein/n og njóttu þess að finna sjálfa/n þig upp á nýtt
11. Í stað þess að hugsa um missinn skaltu hugsa um ný tækifæri
12. Notaðu sambandsslitin sem hvatningu til að taka líkamsræktina á næsta stig
13. Það þarf tvo í tangó; þó að fyrrverandi þinn hafi kannski verið vandamálið þá ertu enginn dýrlingur sjálfur. Greindu hvað þú gerðir rangt og breyttu rétt í næsta sambandi
14. Leitaðu að faglegri aðstoð ef þörf krefur (þjálfari, meðferðaraðili)
15. Hlauptu ofurmaraþon
„Að ganga í gegnum sambandsslit er eitt það erfiðasta sem menn ganga í gegnum. Ég myndi ekki óska neinum þess, en þó að þetta gæti hljómað undarlega, þá er ég þakklátur fyrir lexíurnar sem sambandsslitin færðu mér.
Ég þekki sársaukann sem þú ert að ganga í gegnum. Lofaðu mér og sjálfum þér að halda áfram, sama hversu sárt það er.
Það er ljós við enda ganganna. Þetta mun líka líða hjá. Skuldbinda þig lífinu. Ég trúi á þig. Ég elska þig.“
View this post on Instagram