Þetta er fyrsti dómur sem fellur í máli af þessu tagi í Bretlandi en lögregla telur að holskefla fleiri slíkra mála muni rata fyrir dóm á næstu misserum.
Sky News greindi frá dómnum í morgun. Maðurinn sem var dæmdur heitir Hugh Nelson og er 27 ára.
Í frétt Sky News kemur fram að hann hafi búið til mörg þúsund myndir sem hann seldi svo til annarra níðinga í gegnum spjallhóp á netinu.
Fóru brotin oftar en ekki þannig fram að einstaklingar sendu Nelson hefðbundnar myndir af börnum, sem þeir oftar en ekki þekktu, og fengu hann til að útbúa kynferðislegar myndir af þeim með gervigreindarforriti.
Er talið að Nelson hafi þénað hátt í eina milljón króna á eins og hálfs árs tímabili. Þá kom fram fyrir dómi að hann hafi hvatt „viðskiptavini“ sína til að brjóta kynferðislega gegn þeim börnum sem þeir sendu honum myndir af.
Fram kom í yfirheyrslum yfir níðingnum hjá lögreglu að þeir sem lögðu inn pantanir hjá honum hafi oftar en ekki verið feður, frændur eða fjölskylduvinir umræddra barna. Komu kaupendurnir oftast frá ríkjum eins og Frakklandi, Ítalíu og Bandaríkjunum.
Jeanette Smith, saksóknari hjá Saksóknaraembætti bresku krúnunnar, segir að níðingar hafi áður verið sendir í fangelsi fyrir að útbúa kynferðislegar myndir af börnum með aðstoð gervigreindarforrita. Þetta sé hins vegar fyrsta málið þar sem hægt er að tengja myndirnar við alvöru börn.