Talksport segir að Manchester United sé farið að ræða við nokkra stjóra um það að taka við af Erik ten Hag.
Starf Ten Hag hangir á bláþræði eftir enn eitt tapið um helgina og nú gegn West Ham.
Ten Hag er á sínu þriðja tímabili með United en forráðamenn United hafa undanfarið velt því fyrir sér að reka hann.
Ten Hag fær líklega leikinn gegn Chelsea næstu helgi en ef illa fer þar gæti hann misst starfið.
Talksport segir að United sé í formlegu samtali við nokkra menn sem gætu tekið við.