fbpx
Mánudagur 28.október 2024
Fókus

„Raunveruleikinn varð að okkar verstu martröð“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 28. október 2024 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Hampkastinu:

„Dóttir mín var falleg og dásamleg þegar hún fæddist en hún var örlítið öðruvísi en önnur börn. Hún horfði ekki í augu okkar og grét meira en venjulegt þykir. Þegar hún var aðeins fjörutíu daga gömul fékk hún fyrsta flogakastið. Allur líkami hennar hristist og við foreldrarnir urðum dauðskelkuð,“ segir Norberto Fischer í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins, en hann hélt erindi um dóttur sína Anny á alþjóðlegri ráðstefnu sem félagið stóð fyrir fyrr í mánuðinum.

Anny var fjögurra ára þegar hún var greind með sjaldgæfan og alvarlegan flogaveikissjúkdóm. Hún lærði að tala og ganga áður en sjúkdómurinn náði yfirhöndinni.

„Flogaköstin urðu verri og hún breyttist hreinlega í dúkku sem ekki gat hreyft sig, talað eða borðað. Raunveruleikinn varð að okkar verstu martröð.“

Læknar stóðu ráðalausir andspænis sjúkdómnum og afleiðingum hans þrátt fyrir að reyna öll þau lyf sem í boði voru. Norberto og fjölskylda hans gáfust ekki upp og fengu von þegar þau lásu grein frá Bandaríkjunum og gagnsemi CBD-olíu gegn flogaköstum. Vandamálið var eitt og það var stórt. Norberto er Brasilíumaður og kannabis var með öllu ólöglegt í Brasilíu. „Ég hafði frá barnæsku heyrt að kannabis kæmi frá djöflinum og þarna var maður að segja að CBD gæti bjargað dóttur minni. Hún var að deyja í höndunum á okkur og við ákváðum að flytja inn CBD-olíu.
Við vissum að það var ólöglegt og að við gætum lent í fangelsi en við ákváðum engu að síður að láta vaða. Og við gáfum henni CBD-olíu, settum hana inn fyrir varir hennar og ég grét á þeirri stundu.“

Norberto trúði því vart sjálfur en Anny svaf í gegnum nóttina án þess að fá flogakast. Eftir níu vikur voru flogaköstin alfarið hætt og augljóst að CBD-olían var að virka. Dúkkan varð að barni á nýjan leik.

Tók þá við baráttan við brasilískt stjórnkerfi til þess að bjarga lífi Anny. Með lækna sér í liði fengu þau leyfi til að flytja inn CBD-olíu fyrir Anny og vakti það gríðarlega athygli í Brasilíu. Í kjölfarið var framleidd heimildarmynd um baráttuna, Illegal, sem finna má á myndbandaveitunni YouTube https://youtu.be/uk5DFEnSvN4?si=Y5RM4XNKwCNAJmwb. „En okkur þótti ekki rétt að við ein hefðu leyfi til þess að flytja inn CBD. Allir sem þyrftu á þessu að halda ættu að eiga sama rétt og þannig hófst baráttan fyrir því að opna á þann möguleika. Það tók eitt ár og þá var reglum breytt á þá leið að allir sem höfðu uppáskrifað leyfi frá lækni gátu flutt CBD til landsins.“

Í dag er CBD selt í verslunum í Brasilíu og þarf ekki lyfseðil til að kaupa slíkar vörur. En barátta Norberto skilaði því einnig að þeir sem þurfa á að halda geta einnig fengið CBD-olíu sem blönduð er með THC, að læknisráði. Tókst Norberto og fjölskyldu hans því að tryggja sjúklingum í Brasilíu, landi sem telur 212 milljónir manna, það úrræði að nota lyfjahamp við sjúkdómum og sjúkdómseinkennum sínum. Þannig breytti hann heilbrigðisþjónustunni í Brasilíu.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

Einnig má hlusta á hann á öllum streymisveitum, svo sem Spotify.

Gunnar Dan Wiium, stjórnarmaður í Hampfélaginu, tók viðtalið við Norberto, Andri Karel sá um fréttaskrif og Mickael Lakhlifi sá um tæknimál.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Mel Gibson styður Trump: Kamala Harris með greindarvísitölu á við girðingastaur

Mel Gibson styður Trump: Kamala Harris með greindarvísitölu á við girðingastaur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gummi Emil segir handtökuna erfiðustu lífsreynsluna – „Ég var bara „Af hverju er ég til?“

Gummi Emil segir handtökuna erfiðustu lífsreynsluna – „Ég var bara „Af hverju er ég til?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Var stjarna í vinsælustu unglingaþáttunum en á bak við luktar dyr stjórnaði sértrúarsöfnuðurinn öllu

Var stjarna í vinsælustu unglingaþáttunum en á bak við luktar dyr stjórnaði sértrúarsöfnuðurinn öllu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fórnaði öllu til að elta kærastann til Texas – Þá afhenti hann henni bréf sem breytti öllu

Fórnaði öllu til að elta kærastann til Texas – Þá afhenti hann henni bréf sem breytti öllu