Carlo Ancelotti hefur tjáð sig um það sem gerðist á hliðarlínunni í gær í leik Real Madrid og Barcelona.
Barcelona kom sá og sigraði á Santiago Bernabeu en liðið vann stórkostlegan 4-0 sigur á erkifjendum sínum.
Ancelotti var ósáttur við hegðun starfsmanns Barcelona í leiknum en segist ekki hafa verið að rífast við Hansi Flick, stjóra Börsunga.
,,Hvað gerðist á milli mín og Hansi Flick? Það eru engin vandamál okkar á milli,“ sagði Ancelotti.
,,Einn af hans aðstoðarmönnum var hins vegar enginn herramaður í fagnaðarlátunum. Ég sagði það við Flick og hann var sammála mér.“