fbpx
Miðvikudagur 25.desember 2024
Eyjan

Kristrún leiðir Samfylkinguna í Reykjavík norður – „Við ætlum að hrista upp í kerfinu“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 26. október 2024 12:46

Kristrún segir ríkisstjórnina sjálfa hafa skapað það ástand sem hér er í ríkisfjármálum og með óbreyttri stefnu lagist ekkert.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framboðslistar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 voru samþykktir á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík. Fundurinn var haldinn í félagsheimili Þróttar í Laugardal. Kristrún Frostadóttir þingmaður og formaður flokksins leiðir listann í Reykjavík norður. Dagur B. Eggertsson, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Þórður Snær Júlíusson blaðamaður og fjórða sætið skipar Dagbjört Hákonardóttir þingmaður.

Í heiðurssætinu er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingar og utanríkisráðherra.

Kristrún: Við ætlum að hrista upp í kerfinu

„Ég er virkilega ánægð með sterka framboðslista í Reykjavík sem voru samþykktir rétt í þessu. Ég er í forystusætinu í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jóhann Páll Jóhannsson er í forystusæti listans í Reykjavík suður. Þetta er öflugur hópur af fólki úr öllum áttum og við þurfum að ná sem allra flestum þeirra inn á þing til að vinna í þágu almennings,“ segir Kristrún Frostadóttir að loknum fundinum þar sem framboðslistar Samfylkingarinnar í Reykjavík voru samþykktir.

„Samfylkingin býður trausta forystu og nýtt upphaf fyrir Ísland. Við viljum keyra á samstöðu frekar en á klofningsmálum. Og við viljum ná þjóðinni saman um þau mál sem mestu skipta í daglegu lífi fólks og þar sem er breið sátt meðal almennings.

Við erum með plan. Við höfum kynnt útspil um örugg skref í heilbrigðismálum og árangur í atvinnu- og samgöngumálum, sem við höfum unnið þétt með þjóðinni, og eftir helgi kynnum við nýtt útspil í húsnæðis- og kjaramálum eftir mikla vinnu. Ísland þarf ný kerfi. Betri kerfi sem virka fyrir venjulegt fólk. Og við ætlum ekki bara að láta hlutina malla áfram eins og gamla pólitíkin hefur gert á síðustu árum. Við ætlum að hrista upp í kerfinu – fáum við til þess traust í kosningunum. Nú er bara að keyra þessa kosningabaráttu í gang og ná þjóðinni saman um breytingar.“

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður:
1. Kristrún Frostadóttir, þingmaður og formaður Samfylkingarinnar
2. Dagur Bergþóruson Eggertsson, læknir og fyrrv. borgarstjóri
3. Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður
4. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður
5. Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og sjónvarpsmaður
6. Anna María Jónsdóttir, kennari
7. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur
8. Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, forseti ungs jafnaðarfólks
9. Brandur Bryndísarson Karlsson, frumkvöðull
10. Jelena Bjeletic, leikskólakennari og sjúkraliði
11. Magnea Marinósdóttir, stjórnmálafræðingur
12. Steindór Örn Gunnarsson, húsasmíðanemi
13. Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður VR
14. Alexandra Ýr van Erven, verkefnisstjóri í HR
15. Axel Jón Ellenarson, samskiptastjóri Sameykis
16. Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ
17. Einar Kárason, rithöfundur
18. Jóhanna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
19. Hákon Óli Guðmundsson, verkfræðingur
20. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
21. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og fyrrv. alþingismaður
22. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrv. form. Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir 10 Prís verslanir opna á næsta ári

Segir 10 Prís verslanir opna á næsta ári
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpar lævíst plott Sjálfstæðisflokksins til að tryggja sér fjárhagslega yfirburði – Svona reyndi hann að veikja samkeppnina

Afhjúpar lævíst plott Sjálfstæðisflokksins til að tryggja sér fjárhagslega yfirburði – Svona reyndi hann að veikja samkeppnina
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla endurnýjar listaverkin á Bessastöðum

Halla endurnýjar listaverkin á Bessastöðum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu: Góð verslun fyrir jólin – sprenging í netverslun í nóvember

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu: Góð verslun fyrir jólin – sprenging í netverslun í nóvember
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Leví skrifar – Verri niðurstaða

Björn Leví skrifar – Verri niðurstaða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmundur um vöruhúshneykslið – „Ekki skipulagsslys heldur skemmdar­verk”

Sigmundur um vöruhúshneykslið – „Ekki skipulagsslys heldur skemmdar­verk”