Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í hádegi. Fundurinn var haldinn í Hafnarfirði.
Alma Möller, landslæknir, leiðir listann í Kraganum. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, og í fjórða sæti skipar Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og kennari.
Heiðurssætið skipar Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
„Ég þakka félögum mínum í flokknum fyrir traustið sem mér er sýnt og einnig hlýjar móttökur hér í kjördæminu. Það var virkilega góður andi á fundinum í Hafnarfirði í dag og kosningabaráttan hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi er svo sannarlega hafin. Við förum vel skipulögð og sameinuð inn í kosningabaráttuna, auk þess sem við erum vel nestuð í gegnum útspil flokksins sem unnin voru í gegnum málefnavinnu um land allt, m.a. í samvinnu við almenning og fagfólk
Það er ákall um breytingar í íslenskum stjórnmálum, Samfylkingin er hið pólitíska afl sem getur brugðist við því ákalli og það hyggjumst við gera. Það er þörf á úrbótum hvert sem á er litið og hvort sem um ræðir efnahagsmál, húsnæðismál eða samgöngumál. Heilbrigðismálin eru svo, eins og gefur að skilja, mitt hjartans mál og þar er einnig svigrúm til að gera betur.
Ég hlakka til kosningabaráttunnar sem er fram undan, það er mikill meðbyr með Samfylkingunni og nú gildir að harma járnið meðan það er heitt. Það gerum við með því að snúa bökum saman og halda áfram að sýna þjóðinni að við séum í stakk búin til þess að leiða næstu ríkisstjórn undir forystu okkar frábæra formanns, Kristrúnar Frostadóttur.“ Segir Alma Möller oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi:
- Alma Möller, landlæknir
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi
- Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður
- Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og kennari
- Jóna Þórey Pétursdóttir, lögmaður
- Hildur Rós Guðbjargardóttir, umsjónarkennari
- Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt
- Margrét Hildur Guðmundsdóttir, deildarstjóri
- Mirabela Aurelia Blaga, lögfræðingur
- Baldur Ólafur Svarvarsson, arkitekt
- Friðmey Jónsdóttir, sérfærðingur í æskulýðsmálum
- Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri hjá HSÍ
- Auður Brynjólfsson, stjórnmálafræðingur
- Sævar Már Gústavsson, sálfræðingur
- Maria Eugenia Aleman Henriquez, ráðgjafi
- Bjarni Torfi Álfþórsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
- Kolbrún Lára Kjartnasdóttir, leikskólakennari
- Tryggvi Felixson, leiðsögumaður og ráðgjafi
- Hildur María Friðriksdóttir, sérfræðingur í jarðskorpurannsóknum
- Sigurður Óli Karlsson, háskólanemi
- Sólveig Skaftadóttir, verkefnastjóri
- Þórarinn Snorri Sigurgiersson, skrifstofustjóri Þroskahjálpar
- Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur
- Kári Þrastarson, hugbúnarasérfræðingur
- Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir, vörustjóri
- Ólafur Guðmundsson, fyrr. Rannsóknarlögreglumaður
- Rannveig Guðmundsdóttir, fyrr, alþingismaður
- Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði