11 ára stúlka sem lifði af fjöldamorð á heimili sínu í Seattle á mánudaginn segist hafa vaknað upp við ærandi hávaða er eldri bróðir hennar hóf skothríð. Fljótlega eftir að hún vaknaði ruddist 15 ára bróðir hennar inn í svefnherbergið og byrjaði að skjóta.
Stúlkan segir að hún hafi þóst vera dauð. Hún lokaði augunum og hélt niðri í sér andanum eftir að bróðir hennar skaut hana í hönd og háls. Hún gerði þetta svo bróðir hennar kæmi ekki aftur til að ljúka verkinu.
Ofangreint kemur fram í gögnum sem lögð hafa verið fram fyrir dómi. Stúlkan sagði lögreglu að bróðir hennar hafi notað byssu sem faðir þeirra átti. Byssuna notaði hann til að skjóta foreldrana til bana, tvo bræður hennar og yngri systur.
Hún sagði bróður sinn hafa sturlast eftir skammir sem hann fékk fyrir að falla á prófi. Drengurinn var í gær ákærður fyrir fimm morð af yfirlögðu ráði og eina morðtilraun. 11 ára stúlkan var sú eina í fjölskyldunni sem lifði árásina af.
Hún greindi frá því í skýrslu sinni að hún hafi vaknað við skothríðina og kíkt fram á gang. Þar sá hún föður sinn og 13 ára bróður látna í blóðpolli. Yngsta systkinið, 6 ára stúlka sem deildi herbergi með 11 ára systur sinni, var skotin til bana þegar hún steig út úr herberginu.
11 ára stúlkan lýsti því svo að eftir bróðir hennar skaut hana hafi hann farið fram á gang þar sem hann skoðaði lífsmörk á þremur líflausu fjölskyldumeðlimunum sem þar höfðu fallið í valinn. Hún áttaði sig á því að bróðir hennar myndi eins tryggja að hún væri látin. Hún þóttist því dauð þegar bróðir hennar kom aftur inn í herbergið. Bróðir hennar yfirgaf þá herbergið til að hringja símtal og tókst henni þá að flýja með því að hoppa út um glugga og hlaupa til nágranna sinna. Stúlkan var þá flutt á sjúkrahús.
Á daginn kom að símtalið sem varð henni til bjargar var tilraun bróður hennar til að afvegaleiða lögreglu. Hann hringdi sjálfur í neyðarlínuna og sagði 13 ára bróður sinn hafa skotið fjölskyldu sína til bana og svo svipt sig lífi. Mögulega hefði lögreglan trúað honum ef ekki væri fyrir systur hans sem sagði lögreglu sannleikann.