Víkingur vann frækinn sigur á Cercle Brugge í Sambandsdeildinni í dag. Liðið vann 3-1 sigur á Kópavogsvelli. Gestirnir komust yfir eftir sextán mínútna leik en Ari Sigurpálsson jafnaði mínútu síðar.
Danijel Dejan Djuric klikkaði á víti undir lok fyrri hálfleiks en bætti upp fyrir það á 76 mínútu og kom Víkingum í 2-1. Það var svo Gunnar Vatnhamar sem kláraði leikinn með þriðji marki Víkings á 84 mínútu.
Víkingur er þar með fyrsta liðið frá Íslandi til að vinna leik í riðlakeppni í Evrópu og það í annari tilraun, sigurinn skilar liðinu svo tæpum 70 milljónum króna í kassann.
Stutt á milli í þessu. Fyrir örfáum mánuðum reyndi Gunnar Birgisson að selja þjóðinni að líklega myndum við aldrei ná inn í riðlakeppni aftur. Víkingur gerði ekki bara það, heldur nær í fyrsta sigurinn líka. Ætlar hann núna að segja þjóðinni að líklega gerist það aldrei aftur?
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) October 24, 2024
Belgar eru með 8.bestu deildina í Evrópu. Með fleiri coefficient stig en Hollendingar og Portúgalir í fyrra(23/24) og árið á undan(22/23). Magnað.
Big day for domestic football in Iceland. pic.twitter.com/XmicGWTHkv— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) October 24, 2024
Frábær dagur á Kópavogsvelli. Takk fyrir stuðninginn og sjáumst á sunnudag kæru Víkingar!
❤️🖤 pic.twitter.com/vXwN5wQFtM
— Hrannar Már (@hrannaremm) October 24, 2024
HISTORY MAKING EUROVIKES!!! 3-1 Þvílík FRAMMISTAÐA. ÞVÍLÍKT LIÐ!!!!! TAKK. pic.twitter.com/wmG9Wgva0S
— Víkingur (@vikingurfc) October 24, 2024
Gríðarlega flottur sigur hjá Víkingum og hjálpar okkur í baráttunni um topp 33 sem er gríðarlega fjárhagslega mikilvægt fyrir ísl fótbolta. https://t.co/rmEm3jkcYN
— saevar petursson (@saevarp) October 24, 2024
Áhættufjárfestar fagna þessu myndi ég halda. #DrFootball https://t.co/2QnH1zQSaT
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) October 24, 2024
Og menn vilja meina að Arnar Gunnlaugsson sé ekki besti þjálfari sem Íslenski boltinn hefur séð! Hlæ af svona þvælu😂
— Dagur Frank (@DagurFrank108) October 24, 2024
Fyrstir eða ekki fyrstir. Við náðum allaveganna í stig og ekki bara eitt!🖤❤️
— Dagur Frank (@DagurFrank108) October 24, 2024
Frábær leikur hjá Víkingum!
Stórt fyrir íslenskan fótbolta
🖤❤️— Einar Guðnason (@EinarGudna) October 24, 2024
Okkar ástsæli Tómas Þór greip Arnar eftir leik. Fagna í kvöld. Fókus á morgun. Takk. ❤️ 🖤 pic.twitter.com/F83XerIfT6
— Víkingur (@vikingurfc) October 24, 2024
Gunnar Vatnhamar played the whole match for Víkingur AND SCORED as they won their first-ever Conference League (league) match today!
Congratulations Gunnar, congratulations @vikingurfc! pic.twitter.com/HMZ5IUNhMf
— Færøsk fodbold (@FaeroskFodbold) October 24, 2024