Hann lét þessi ummæli falla í tengslum við umræðu um að starfsfólkið sé ekki ánægt með þá stefnu fyrirtækisins að það skuli mæta á skrifstofuna fimm daga í viku.
Reuters segir að á fundi innan fyrirtækisins hafi Garman sagt að starfsfólk, sem sættir sig ekki við þessa reglu, geti bara leitað sér að nýrri vinnu.
Hann er einnig sagður hafa sagt að 9 af hverjum 10 starfsmönnum, sem hann hafi rætt við, hafi lýst yfir stuðningi við þessa stefnu sem tekur gildi í byrjun næsta árs og nær til alls skrifstofufólks.
„Ef það er fólk, sem vinnur ekki vel í þessu umhverfi og vill það ekki, þá er það í lagi, það eru önnur fyrirtæki til,“ sagði hann og bætti við að hann væri ekki að meina þetta á slæman hátt. Amazon vilji hafa starfsumhverfi þar sem fólk vinni saman og þegar fyrirtækið vilji vinna að þróun nýrra vara, þá hafi hann ekki séð að það gangi þegar fólk er ekki til staðar á skrifstofunni.
Amazon er með eina og hálfa milljón starfsmanna um allan heim, fólk í hlutastarfi er talið með í þessari tölu.