Víkingur lék sinn fyrsta heimaleik í Sambandsdeildinni í Kóapvogi í dag en liðið þarf að leika heimaleiki sína á velli Breiðabliks.
Til að reyna að gera völlinn að sínum var ákveðið að fara í breytingar á klefanum.
Þannig var límt yfir merki Breiðabliks í klefanum en þessi lið mætast í úrslitaleik Bestu deildarinnar á sunnudag.
Víkingur mætti Cercle Brugge í dag á Kópavogsvelli í dag en liðið reynir nú að hvíla lúin bein fyrir átökin á föstudag.