Sigmar vekur athygli á þessu á Facebook-síðu sinni og spyr hvort íslenska þjóðin hafi fengið einhverjar fréttir af því að Fríhöfnin sé á leið í söluferli.
Greint var frá því í janúar síðastliðnum að Isavia hefði í hyggju að efna til forvals vegna væntanlegs útboðs á rekstri Fríhafnarinnar þar sem seldur er tollfrjáls varningur, meðal annars áfengi, tóbak og sælgæti.
Ekki hægt að útiloka uppsagnir vegna fyrirhugaðs útboðs á rekstri Fríhafnarinnar
Viðskiptablaðið hafði á þeim tíma eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar hjá Isavia, að mikill áhugi væri meðal erlendra aðila sem koma að rekstri slíkra verslana að koma að rekstri fríhafnar á íslandi. Kvaðst hann reikna með að nýir aðilar tækju við rekstri eftir um tvö ár en að niðurstöður væntanlegs útboðs myndu liggja fyrir eftir 12 til 18 mánuði, það er á fyrri hluta næsta árs.
Þessar fréttir hafa væntanlega farið fram hjá Sigmari en hvað sem því líður líst honum ekkert sérstaklega vel á þessa þróun ef hún verður að veruleika.
„Íslenskir áfengis- og sælgætisframleiðendur hafa hingað til notið Fríhafnarinnar sem sölupall fyrir vörur sínar og glæsilega kynningu fyrir sig og landið þegar 2,3 milljónir manns rölta þar í gegn, tvisvar. En auðvitað, þegar erlendur hæstbjóðandi tekur yfir, verður þeim örugglega alveg sama hvort áfengið, handverkið og súkkulaðið sé frá Íslandi eða einhverjum öðrum afskekktum stað. Hæstbjóðandi mun fá “dílinn” og hann mun líklega ekki gera upp sinn rekstur á Íslandi,“ segir hann meðal annars.