Bruno Rotta áhrifavaldur og unnusta Rodrygo leikmanns Real Madrid hefur gefið það í skyn að unnusti hennar sé hálfgerður skítapési.
Rotta og Rodrygo hafa verið par í eitt ár en þessi 26 ára kona er vinsæl á samfélagsmiðlum.
Á TikTok er Rotta með 2 milljónir fylgjenda. „Ég mun aldrei vera með manni sem fer ekki reglulega í sturtu,“ sagði hún áður en þau fóru að hittast.
Rotta virðist hins vegar hafa þurft að éta orð sín. „Ég hef þurft að borga fyrir orð mín,“ sagði Rotta og birti mynd af Rodrygo.
„Farið varlega þegar örlög ykkar er í húfu, það kemur stundum í bakið á þér,“ sagði Rotta og nú halda allir að Rodrygo sé latur við það að fara í sturtu.
Rodrygo er 23 ára gamall og kemur frá Brasilíu en Rotta er þremur árum eldri og virðist sætta sig við illa þrifin unnusta.