Segir stofnunin þetta vera sögulegt. Tedros Adhanom, forstjóri WHO, sagði í tilkynningu að malaría sé jafn gömul egypskri menningu en þessi sjúkdómur, sem hrelldi faróana, heyri nú sögunni til.
Með þessu áfanga er nærri aldarlöngu verkefni í landinu lokið en stefnt var að því að útrýma sjúkdómnum.
WHO lýsir land laust við malaríu ef ekkert tilfelli greinist þar í þrjú ár í röð. Þess utan verður landið að sýna fram á að það geti komið í veg fyrir að sjúkdómurinn nái að hreiðra um sig á nýjan leik.
WHO segir að rekja megi sögu malaríu í Egyptalandi til baka allt að 4.000 fyrir Krist. Meðal annars fundust ummerki um malaríu í faróum Tutankhamon en lík hans er vel varðveitt.
Malaría verður um 600.000 manns að bana árlega. 95% fórnarlambanna eru í Afríku og það eru börn sem eru í mestri hættu. 80% þeirra sem látast af völdum malaríu í Afríku eru yngri en fimm ára.
Sjúkdómurinn berst með mýflugum en getur einnig borist á milli fólks við blóðgjöf.