Áhöfnin á Sigga Bjarna KE 5 hefur fengið ýmislegt í nótina á undanförnum árum. Meðal annars brúðu sem varð kveikjan að metsöluskáldsögu og nú síðast bleika kynlífsmúffu.
Bubbi Gunnlaugarson, sjómaður á dragnótabátnum Sigga Bjarna sem er gerður út frá Garði, birtir í dag myndir af ýmsu sem áhöfnin hefur fundið. Kennir þar ýmissa grasa.
„Það er nú ýmislegt sem voðin hefur fært okkur hér í Faxaflóanum …. Það nýjasta er ……. bleik múffa,“ segir Bubbi í færslu á samfélagsmiðlum.
Um þessar mundir fer einmitt fram auglýsingaherferð Sorpu og kynlífstækjaverslunarinnar Blush þar sem minnt er á mikilvægi þess að setja gömul kynlífstæki í endurvinnslu. Þeirri herferð er aðallega beint að rafknúnum kynlífstækjum en múffan sem kom í netin hjá Sigga Bjarna virðist ganga fyrir handafli.
Einn gripur hefur vakið sérstaka eftirtekt. Það er brúða, illa útleikin eftir barninginn í hafinu, eineygð og þakin hrúðurkörlum. Er hún með stingandi og jafn vel ásakandi augnaráð.
Myndin af dúkkunni var kveikjan að skáldsögunni Brúðan eftir Yrsu Sigurðardóttur frá árinu 2018. Í lýsingu af bókinni segir:
„Gömul brúða þakin hrúðurkörlum en með nisti um hálsinn er dregin úr sjó með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Forstöðumaður vistheimilis er sakaður um alvarlegan glæp. Útigangsmaður finnst myrtur. Og ferðamenn hverfa sporlaust.“
Í formála bókarinnar er Tryggva Jónssyni, skipskokkinum á Sigga Bjarna, þakkað en hann tók myndina áhrifamiklu.
Eins og sést á myndunum hafa fleiri leikföng komið í netin. Einnig stígvél og skór úr gúmmí, kokteilhristir, bolli og sitthvað fleira.
Í athugasemdum við færsluna er nefnt að það sé heppilegt að fá bleika múffu í netin á sjálfum bleika deginum. Það er dagur bleiku slaufunnar á vegum Krabbameinsfélagsins.